
Umhverfisstefna Húsasmiðjunnar og Blómavals
Húsasmiðjan leitast við að starfa í sátt við umhverfið meðal annars með því að minnka stöðugt vistspor rekstrarins og virðiskeðju fyrirtækisins með markvissum ákvörðunum og aðgerðum.
Þess má geta að með markvissum aðgerðum tókst Húsasmiðjunni að lækka mælda heildarlosun koltvísýringsígilda frá starfseminni um 12 prósent á milli áranna 2019 og 2020 ásamt því að hafa nú kolefnisbundið losun í samstarfi við Kolvið og Votlendissjóð. Sjá nánar hér
Umhverfisstefnan í framkvæmd
Húsasmiðjan skuldbindur sig til að vinna með markvissum aðgerðum að því að lágmarka umhverfisáhrif starfseminnar og auðvelda vistvænar framkvæmdir með því að:
- Starfa samkvæmt reglum og lögum sem gilda um umhverfisvernd á Íslandi og leita stöðugt leiða til að spara orku, minnka úrgang og
starfa í sem mestri sátt við umhverfi fyrirtækisins og framkvæma reglulega áhættumat fyrir rekstrareiningar. - Hafa að leiðarljósi að rekstrarákvarðanir taki mið af að skapa heilbrigt starfsumhverfi og skynsamlega nýtingu auðlinda.
- Efla samstarf við birgja sem huga markvisst að umhverfi sínu, eru vottaðir, og framleiða vörur með eins umhverfisvænum hætti og unnt er. Markmið Húsasmiðjunnar er jafnframt að kynna umhverfisvænar vörur markvisst, bjóða upp á nýjungar, tryggja sýnileika umhverfisvænna vara og lausna lausna á vef og í verslunum. Markmið okkar er að bjóða upp á umhverfisvæna valkosti í öllum helstu vöruflokkum.
- Vinna markvisst að fræðslu og þjálfun starfsmanna til að auka þekkingu á umhverfismálum og deila þeirri þekkingu einnig með viðskiptavinum okkar.
- Hvetja alla hagaðila til almennrar virðingar fyrir umhverfinu.
- Setja reglulega mælanleg og tímasett markmið í umhverfismálum.
Verkefnastjóri umhverfis-og samfélagsmála
Emilía Borgþórsdóttir er verkefnastjóri umhverfis-og samfélagsmála.
2020: Samfélagsskýrsla BYGMA og Húsasmiðjunnar
2020: Samfélagsuppgjör Húsasmiðjunnar
Húsasmiðjan hefur birt samfélagsuppgjör fyrir 2020 í samstarfi við Klappir Grænar lausnir hf sem er liður í stefnu Húsasmiðjunnar í að auka áherslu markvisst á umhverfis og samfélagsmál ásamt því að leita leiða til að lágmarka kolefnisspor starfseminnar. Allar verslanir, skrifstofa og vöruhús Húsasmiðjunnar, Blómavals og Ískraft ásamt bíla- og tækjaflota eru hluti af samfélagsuppgjörinu.
Með markvissum aðgerðum tókst Húsasmiðjunni að lækka mælda heildarlosun koltvísýringsígilda frá starfseminni um 12 prósent á milli áranna 2019 og 2020 ásamt því að hafa nú kolefnisbundið losun í samstarfi við Kolvið og Votlendissjóð.
Niðurstöðum uppgjörsins er skipt í þrjá hluta: umhverfi, félagslegir þættir og stjórnarhættir. Uppgjörið er unnið skv. UFS leiðbeiningum Nasdaq fyrir 2020 en viðmiðunarárið er 2019
Svansvottuð hús
Þessi vörulisti yfir vistvænar byggingarvörur gefur innsýn inn það mikla vöruúrval af vistvænum vörum sem Húsasmiðjan býður upp á og eru leyfðar í Svansvottuð byggingaverkefni.

Fyrsta uppgerða Svansvottaða húsið
Nú er endurbótum á húsi við Þingholtsstræti 35 lokið. Þetta fallega hús hefur fengið yfirhalningu og er fyrsta uppgerða Svans-
vottaða húsið á Íslandi. Breyting ehf. stóð fyrir breytingunum í samstarfi við Húsasmiðjuna sem útvegaði bygginarefni í verkið sem allt er Svansvottað eða leyfilegt í Svansvottuð hús.
Nú er hægt að nálgast allar þær vörur sem voru notaðar í þetta verkefni ásamt fjölda annarra á heimasíðu Húsasmiðjunnar og
skoða vörulista fyrir Svansvottuð hús.

Við flokkum sorp, mælum orkunotkun og kolefnisspor fyrirtækisins í samstarfi við Klappir
Við leitum stöðugt leiða til að spara orku og minnka úrgang. Við erum í samstarfi við Klappir varðandi mælingar á orkunotkun og sorplosun á starfsstöðvum. Við notum EnviroMaster-lausn Klappa tila ð fylgjast með helstu umhverfsþáttum starfsemi okkar m.a. rafmagns-, eldsneytis-, heitavatnsnotkun og úrgangsmyndun (sorpi). Við höfum í mörg ár unnið markvisst að því að minnka sóun og flokka sorp í verslunum okkar um land allt og á skrifstofum.

Grænar vörur í Húsasmiðjunni
Húsasmiðjan býður upp á eitt mesta úrval landsins af umhverfisvænum byggingavörum. Í vefverslun eru allar umhverfisvænar og umhverfisvottaðar vörur sérmerktar með grænum borða sem við köllum "Græn vara".
Sjá nánar hér

Umhverfisvænar vörur
Við leggjum metnað okkar í að bjóða upp á mikið úrval af umhverfisvænum vörum.
Umhverfisvæn merki sem við erum með sjá hér.
Hleðslustöðvar
Húsasmiðjan var fyrst byggingarvöruverslana til að bjóða upp á hleðslutöðvar fyrir rafmagnsbíla í Fagmannaverslun árið 2017.
Sjáðu úrvalið af hleðslustöðvum hér

Timbur úr sjálfbærum skógum
Nánast allt okkar timbur kemur úr sjálfbærum skógum.
Sjá timbur og pallaefni hér
Við kveðjum plastpokann
Árið 2020 hættum við að nota innkaupapoka úr plasti og skiptum þeim út fyrir umhverfisvæna poka úr maíssterkju. Pokana er hægt að fá við alla afgreiðslukassa í verslunum Húsasmiðunnar. Árið 2021 tókum við svo einnig í notkun bréfpoka fyrir viðskiptavini sem kost í stað maíspokana.