Framúraskarandi og til fyrirmyndar sjötta árið í röð!
Húsasmiðjan hlýtur tvær viðurkenningar fyrir að vera Framúrskarandi fyrirtæki sjötta árið í röð
Við erum afar stolt af því að tilheyra flokki Framúrskarandi fyrirtækja sjötta ár í röð hjá Creditinfo og Fyrirmyndar fyrirtækja í rekstri að mati Viðskiptablaðsins og Keldunnar. Húsasmiðjunni hafa verið afhent viðurkenningarskjöl fyrir árið 2022 þessu til staðfestingar.
Aðeins rúmlega 2% fyrirtækja á hlutafélagaskrá teljast vera til fyrirmyndar samkvæmt Creditinfo. Síðastliðin tíu ár hefur Creditinfo unnið ítarlega greiningu sem sýnir rekstur hvaða íslensku fyrirtækja telst til fyrirmyndar. Til þess að hljóta þessa viðurkenningu þurfa fyrirtæki m.a. að hafa skilað ársreikningi til RSK síðastliðin þrjú ár, vera í lánshæfisflokki 1-3, hafa sýnt jákvæðan rekstrarhagnað (EBIT) og jákvæða ársniðurstöðu þrjú ár í röð og eiginfjárhlutfall þarf að lágmarki að vera 20% þrjú rekstrarár í röð.
Húsasmiðjan hefur jafnframt verið á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri frá árinu 2017 en aðeins 2% fyrirtækja komast á þann lista á ári hverju. Uppfylla þarf svipuð skilyrði og eru hjá Creditinfo.
