Sígrænt í útipotti
Veturinn er sá árstími sem sígræn tré og runnar njóta sín best og allra
best þegar snjórinn liggur yfir eins og hvítt teppi.
Fallegt er að hafa sígræna runna í pottum við innganginn og ekki dregur
úr fegurðinni og hlýjunni séu runnarnir skreyttir ljósum í skammdeginum
hvort sem það er hvítt eða rautt.
Græni liturinn í skammdeginu og að hafa sígrænar plöntur í kringum sig á
vetrasólstöðum er æfa gömul hefð og grænu plönturnar tákn um rísandi
sól og komandi vor.
Gott er að temja sér að líta á sígræna runna í fallegum útipottum eins og
sumarblóm nema hvað sígrænu plöntunum er ætlað að standa yfir
veturinn. Að vori má skipta þeim út og planta sumarblómum í kerið.
Komi runnarnir vel undan vetri má planta þeim út í garð eða ef plássið er
lítið gefa vinum eða vandamönnum sem hafa meira pláss plöntuna.
Mismunandi ættkvíslir og tegundir barrviða geta verið mjög ólíkar í útliti.
Þær eru allt frá því að vera margra tuga metra há tré niður í jarðlæga
runna sem þrífast við margs konar aðstæður.
Lífviður, sýprus og einir allt eru þetta fallegir sígrænir runnar sem fara vel í
pottum og auðvelt er að skreyta ljósum og standa allan veturinn.
- Vilmundur Hansen.