Kostir GreenCoat®
GreenCoat® er umhverfisvæn stálklæðning, framleidd af SSAB, sem hentar sérstaklega vel fyrir krefjandi aðstæður. Klæðningin er varin með húð sem er unnin úr sænskri repjuolíu og hefur farið í gegnum áratugalangt þróunarferli til að tryggja hámarks endingu.
Bára 18
Báruformið kallast 18/76, sem þýðir að hæðin á bárunni er 18mm og breidd hverrar báru er 76 mm. Bárujárnið er bæði hægt að nota til klæðningar á loft og veggi og bæði innanhúss og utan. Þegar klæða skal veggi er hægt að nota báruplötur bæði sem lárétta og lóðrétta klæðningu (standandi eða liggjandi).
Efni | Stál |
Þykkt | 0,5 – 0,6 mm |
Ómálað | Aluzink |
Litað/húðað | Green Coat ProBT |
Þegar járn er fest á þak er mælt með að nota 12-14 festingar (þaksaum eða skrúfur) á hvern fermetra. Ef bárujárn er notað til að klæða á veggi eru notaðar 10-12 festingar á fermetra.
ATH: Ekki er ráðlagt að nota aluzink á óeinangruð gripahús
Trapisa 20
Trapisa 20 er trapisuvölsuð plata 20mm á hæðina. Trapisan er notuð til að klæða veggi og er hún klædd bæði lárétt og lóðrétt. Platan er 1,07 m breið en klæðir 1,00 m þegar hún hefur verið sköruð. Mælt er með að nota 10-12 festingar (nagla eða skrúfur) þegar festa skal trapisuplötur á veggi.
Efni | Stál |
Þykkt | 0,5 – 0,6 mm |
Ómálað | Aluzink |
Litað/húðað | Green Coat ProBT |
Þegar járn er fest á þak er mælt með að nota 12-14 festingar (þaksaum eða skrúfur) á hvern fermetra. Ef bárujárn er notað til að klæða á veggi eru notaðar 10-12 festingar á fermetra.
ATH: Ekki er ráðlagt að nota aluzink á óeinangruð gripahús
Trapisa 45
Trapisa 45 er trapisuvölsuð plata 45mm á hæðina. Trapisa 45 er notuð sem klæðning bæði á veggi og þök og hefur verið vinsæl til notkunar á stærri byggingar eins og til að mynda iðnaðarhúsnæði, útihús og skemmur. Hægt er að nota trapisu 45 bæði sem lárétta og lóðrétta klæðningu þegar klæða skal veggi.