FROST seríur fyrir íslenskt veðurfar
FROST LED seríurnar fást eingöngu í Húsasmiðjunni og Blómavali. Útiseríurnar þola íslenskt veðurfar vel og hafa reynst einstaklega vel hérlendis. Húsasmiðjan og Blómaval leggja áherslu á að bjóða gæða seríur á lægra verði og breitt vöruúrval sem hentar íslenskum aðstæðum. FROST seríurnar hafa verið á íslenskum markaði síðastliðin 10 ár og hefur vöruúrval og vöruþróun verið sérlega valið fyrir krefjandi veðurfar hér á Íslandi. Þessa vegna eru seríurnar okkar frá FROST svona vinsælar - gæðanna vegna. Þær eyða einnig allt að 24% minna rafmagni en aðrar seríur á markaðnum, þær eru bæði vatns og höggþéttar, sterkir kaplar og sérlega falleg birta fyrir okkar dimma vetur.
Fyrir þakkantinn og svalirnar
Seríur fyrir þakkantinn og svalirnar þola íslenskt veðurfar. Hægt er að tengja saman allt að 40 seríur, 800 ljós á einni innstungu. Seríurnar eru með stærri perum og gefa fallega lýsingu. Seríurnar eru fáanlegar bæði með sléttum og rásuðum perum sem gefa ögn mismunandi birtu upplifun. Báðar tegundir eru mjög vinsælar.
Gæða seríur, minni sóun, betra fyrir umhverfið
Samtengjanlegu FROST seríurnar eru sérvaldar og þróaðar fyrir íslenskt veðurfar. Þær endast því mun lengur. Við höfum boðið upp á FROST seríur í 10 ár hér á landi og engar seríur sem við höfum selt jafnast á við þær í gæðum. Gæðaseríur endast lengur, minnka þannig sóun og eru því betri fyrir umhverfið
2000 ljós á einni kló
Öflugar seríur sem þola vel íslenskt veðurfar. Alls má tengja 20 seríur saman eða 2000 ljós á sömu innstungu. Seríurnar henta vel t.d. til að vefja tré, á þakkant, svalir og margt fleira. Hágæða seríur sem duga ár eftir ár. Margir litir og gerðir í boði.
Herpihólkurinn tryggir enn lengri endingu í íslensku veðri
Við mælum með að bræða herpihólkinn yfir samtenginguna sem fylgir seríunum frá FROST. Herpihólkurinn tryggir enn lengri og betri vörn gegn raka og vatni.
Þegar tvær seríur eru tengdar saman skal bræða herpihólkinn sem fylgir með yfir samskeytin svo að serían sé enn betur vatnsþétt. FROST seríurnar eru bæði vatns og höggþéttar og þola því vel íslenskt veðurfar með kulda, bleytu og roki.