Þökulagnir
Þökulagnir í heimagörðum, aðferð og verklag
Auðvelt er að leggja þökur sem eru jafnar og vel skornar. Mikilvægt er að velja gott torf sem ræktað var í næringarríkum jarðvegi. Einnig er mikilvægt að fræblandan sem torfið inniheldur henti þeim aðstæðum sem fyrir hendi eru, t.d. gagnvart sliti, skuggasvæðum, brekkum o.fl.
Eftirfarandi leiðbeiningar eiga við um einfaldar þökulagnir í heimagörðum, aðferðir og verklag.
Hvenær er rétti tíminn?
Leggja má túnþökur frá vori fram á haust, en mikilvægt er að nota ávallt nýskorið torf. Besti tíminn til þökulagna er í lok maí þegar rætur grassins eru í mestum vexti.
Undirbúningur og framkvæmd
Áður en þökurnar eru lagðar er nauðsynlegt að meta jarðveginn (vaxtarlagið) og hvort aðgerða sé þörf til að grasið þrífist sem best. Við mat á jarðvegi skal tekið tillit til hvort jarðvegur sé þjappaður, loftlaus eða blautur. Við slíkar aðstæður vill mosi ná undirtökum og grasið verður viðkvæmt fyrir sliti. Því er mikilvægt að losa um þjappaðan jarðveg, t.d. með jarðvegstætara eða gaffli. Æskilegt er að fjarlægja allt stærra grjót úr yfirborði sem er yfir 20 mm að stærð.
Vaxtarlagið, sem er efstu 10-30 cm yfirborðs, skiptir miklu máli. Best er að vaxtarlagið samanstandi af sendnum jarðvegi, blönduðum með næringarríkri mold, t.d. 60% milligrófur sandur (0,25-2mm) og 40% næringarrík mold.
Þegar vaxtarlaginu er dreift og það jafnað er gott að setja út hæla og strengja snúrur á milli til að afmarka útlínur og jafna hæðir. Gæta skal þess að lagþykkt sé sem jöfnust yfir allan flötinn, því annars vill verða misvöxtur í grasinu. Fjarlægja skal allt rótarillgresi og mylja moldarköggla. Gott er að blanda lífrænum áburði í vaxtarlagið t.d. þörungamjöli eða hænsnaskít (sjá nánar um æskilegt magn á umbúðum). Einnig er gott að blanda vaxtarlagið með fosfór, t.d. þrífosfati 2 kg/100 m2. Þrífosfat styrkir rótarkerfi grassins og flýtir fyrir rótfestingu.
Þegar yfirborð jarðvegs er jafnað skal leitast við að hafa vatnshalla frá húsi, verði því við komið. Forðast skal að stíga mikið í svæði sem búið er að jafna og slétta áður en þökurnar eru lagðar yfir.
Best er að öllum yfirborðsfrágangi sé lokið áður en túnþökurnar koma á svæðið. Gott er að setja út hæla og strengja stýrilínur á milli til að afmarka svæði og tryggja beinar útlínur, t.d. meðfram gróðurbeðum eða öðrum aðliggjandi svæðum. Leggja skal þökurnar strax og þær koma eða eins fljótt og hægt er. Ef geyma þarf þökur er best að dreifa úr þeim, gæta vel að raka og vökva eftir þörfum.
Best er að leggja þökurnar langsum meðfram langhlið svæðisins. Fylgja skal stýrilínu og hafa hverja röð eins beina og hægt er. Best er að láta næstu röð skarast á við þá fyrri, þ.e.a.s. leggja þökurnar „hálft í hálft“ sem eykur styrk á samskeytum. Mikilvægt er að þökurnar séu sléttar á yfirborðinu, illa skornar þökur sem eru misþykkar getur þurft að jafna sérstaklega undir. Leggja skal þökurnar þétt saman og hvergi eiga að vera bil á milli langhliða eða enda.
Þökur sem lagðar eru að bogadregnum svæðum þarf að skera til með kantskera eða hníf. Einnig þarf oft að skera saman þökur, t.d. við endamörk. Þá er best að leggja heilar þökur meðfram línu sem afmarkar svæðið og yfir aðliggjandi þökur. Síðan er skorið meðfram yfirliggjandi þökunum og afskurður fjarlægður undan. Á þann hátt eru heilar þökur meðfram endum svæðis.
Ganga skal vel frá öllum endum svo að vindur komist ekki undir. Annars er hætta á að endarnir þorni og grói illa. Ef þökur eru lagðar yfir eða að eldra grassvæði þarf að kantskera meðfram endum og lyfta upp aðliggjandi yfirborði svo að hæðir séu samhliða. Einnig er gott að sanda yfirborð þakanna vel og þá sérstaklega öll samskeiti. Nota skal pússningasand eða álíka (kornastærð 0,25-2 mm). Best er að sandurinn sé þurr þegar honum er dreift og gott er að miða við 0,5 cm lag = ½ rúmmetra á 100 m2
Mikilvægt að vökva vel
Að lokum þarf að vökva þökurnar vel og fylgjast grannt með rakastigi á meðan torfið er að gróa saman. Einnig er mikilvægt er að gefa grasinu áburð, t.d. Blákorn, 3 kg/100 m2 (sjá nánar í texta um áburðargjöf).
Hefja skal slátt þegar gras hefur náð 10 cm hæð. Þá er best að stilla sláttuvélina í hæstu stillingu, t.d. í 7 cm sláttuhæð. Best er að slá aldrei meira en 1/3 af hæð grassins í einu. Hæðin er svo lækkuð í áföngum þar til komið er í æskilega sláttuhæð sem oft er 3-4 cm á venjulegum heimilisgrasflötum.
Þökulagnir skal framkvæma í þessari röð
1. Losa þjappaðan jarðveg, t.d. með jarðvegstætara eða gaffli.
2. Dreifa áburði yfir svæðið og vinna saman við jarðveginn.
3. Fínjafna svæði.
4. Setja út hæla og stýrilínur.
5. Leggja þökur í beinum línum og láta raðir skarast.
6. Skera saman þökur og meðfram köntum.
7. Gefa áburð yfir þökurnar.
8. Vökva svæðið vel.
Efni og verkfæri
- Nýskornar þökur.
- Áburður t.d. Graskorn.
- Kantskeri til að skera saman þökur og ganga frá endum.
- Malarhrífa til að jafna mold o.fl.
- Hrífa til að raka saman mosa og grasi úr yfirborði.
- Jarðvegsskafa til að jafna jarðveg.
- Hjólbörur til að að færa til efni, bæði þökur og jarðveg.
- Vatnsslöngur og úðarar til vökvunar.