Umhverfisstefna Húsasmiðjunnar og Blómavals
Húsasmiðjan gerir sér grein fyrir ábyrgðarhlutverki sínu í gegnum virðiskeðjuna og skuldbindur sig til að vinna með markvissum aðgerðum að lágmarka umhverfisáhrif starfsemi sinnar. Um leið að vera leiðandi fyrirtæki fyrir byggingariðnað sem auðveldar viðskiptavinum að fara í vistvænar framkvæmdir.
Þess má geta að með markvissum aðgerðum tókst Húsasmiðjunni að lækka mælda heildarlosun koltvísýringsígilda frá starfseminni um 12 prósent á milli áranna 2019 og 2020 ásamt því að hafa nú kolefnisbundið losun í samstarfi við Kolvið og Votlendissjóð. Sjá nánar hér
Markmið
- Vera leiðandi fyrir vistvænar byggingar á Íslandi.
- Bjóða upp á hagkvæma, umhverfisvænni kosti í öllum helstu vöruflokkum.
- Minnka vistspor fyrirtækisins.
- Skapa heilbrigt og gefandi starfsumhverfi.
- Setja reglulega mælanleg og tímasett markmið í umhverfismálum.
- Minnka kolefnislosun um 40% fyrir árið 2030.
Aðgerðir
- Auðveldum viðskiptavinum okkar val á vistvænum vörum, sem lúta að reglum þess vottunarkerfis sem unnið er eftir hverju sinni. Sem þýðir stöðuga þróun þar sem vottunarkerfi eru tekin reglulega í endurmat.
- Efla og auka samstarf við birgja sem huga markvisst að umhverfi sínu, eru vottaðir og framleiða vörur með umhverfisvænum hætti.
- Sýna fram á hagkvæmni í rekstri, innleiðing ferla sem halda sóun í lágmarki. Leita stöðugt leiða til að draga úr orkunotkun, minnka úrgang og koma þeim úrgangi sem til fellur í endurvinnsluferla og með því minnka vistspor fyrirtækisins.
- Vinna markvisst að fræðslu og þjálfun starfsmanna með aukinni þekkingu og metnaði á umhverfismálum, þekkingu og reynslu deilt með viðskiptavinum okkar.
- Rekstrarákvarðanir eru teknar með það að leiðarljósi að nýta náttúruauðlindir skynsamlega. Hvetja alla hagaðila til virðingar fyrir umhverfinu, að þeir setji sér raunhæf mælanleg markmið í því skyni að draga úr umhverfisáhrifum sínum.
- Leiðir að minnkandi kolefnislosun í umfangi 1 og 2 eru að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og fara í orkusparandi aðgerðir. Í umfangi 3 verður farið í að minnka magn úrgangs og auka hlutfall flokkaðs úrgangs í 90% til og með 2025.