Umhverfisstefna Húsasmiðjunnar og Blómavals
Húsasmiðjan gerir sér grein fyrir ábyrgðarhlutverki sínu í gegnum virðiskeðjuna og
skuldbindur sig til að vinna með markvissum aðgerðum að því að lágmarka umhverfisáhrif
starfsemi sinnar. Um leið að vera leiðandi fyrirtæki í byggingariðnaði sem auðveldar
viðskiptavinum að fara í vistvænar framkvæmdir.
Þess má geta að með markvissum aðgerðum tókst Húsasmiðjunni að lækka mælda heildarlosun koltvísýringsígilda frá starfseminni um 12 prósent á milli áranna 2019 og 2020 ásamt því að hafa nú kolefnisbundið losun í samstarfi við Kolvið og Votlendissjóð. Sjá nánar hér
Markmið
1. Vera leiðandi fyrir vistvænar byggingar á Íslandi.
2. Bjóða upp á hagkvæma, umhverfisvænni kosti í öllum helstu vöruflokkum.
3. Minnka vistspor fyrirtækisins.
4. Skapa heilbrigt og gefandi starfsumhverfi.
5. Setja reglulega mælanleg og tímasett markmið í umhverfismálum.
6. Minnka kolefnislosun um 40% fyrir árið 2030.
Aðgerðir
1. Auðveldum viðskiptavinum okkar val á vistvænum vörum, sem lúta að reglum þess
vottunarkerfis sem unnið er eftir hverju sinni. Sem þýðir stöðuga þróun þar sem vottunarkerfi
eru tekin reglulega í endurmat.
2. Efla og auka samstarf við birgja sem huga markvisst að umhverfi sínu, eru vottaðir og
framleiða vörur með umhverfisvænum hætti.
3. Sýna fram á hagkvæmni í rekstri, innleiðing ferla sem halda sóun í lágmarki. Leita stöðugt
leiða til að draga úr orkunotkun, minnka úrgang og koma þeim úrgangi sem til fellur í
endurvinnsluferla og með því minnka vistspor fyrirtækisins.
4. Vinna markvisst að fræðslu og þjálfun starfsmanna með aukinni þekkingu og metnaði á
umhverfismálum, þekkingu og reynslu deilt með viðskiptavinum okkar.
5. Rekstrarákvarðanir eru teknar með það að leiðarljósi að nýta náttúruauðlindir
skynsamlega. Hvetja alla hagaðila til virðingar fyrir umhverfinu, að þeir setji sér raunhæf
mælanleg markmið í því skyni að draga úr umhverfisáhrifum sínum.
6. Leiðir að minnkandi kolefnislosun í umfangi 1 og 2 eru að draga úr notkun
jarðefnaeldsneytis og fara í orkusparandi aðgerðir. Í umfangi 3 verður farið í að minnka
magn úrgangs og auka hlutfall flokkaðs úrgangs í 90% til og með 2025.
Verkefnastjóri umhverfis-og samfélagsmála
Emilía Borgþórsdóttir er verkefnastjóri umhverfis-og samfélagsmála.
2020: Samfélagsskýrsla BYGMA og Húsasmiðjunnar
2020: Samfélagsuppgjör Húsasmiðjunnar
Húsasmiðjan hefur birt samfélagsuppgjör fyrir 2020 í samstarfi við Klappir Grænar lausnir hf sem er liður í stefnu Húsasmiðjunnar í að auka áherslu markvisst á umhverfis og samfélagsmál ásamt því að leita leiða til að lágmarka kolefnisspor starfseminnar. Allar verslanir, skrifstofa og vöruhús Húsasmiðjunnar, Blómavals og Ískraft ásamt bíla- og tækjaflota eru hluti af samfélagsuppgjörinu.
Með markvissum aðgerðum tókst Húsasmiðjunni að lækka mælda heildarlosun koltvísýringsígilda frá starfseminni um 12% á milli áranna 2019 og 2020 ásamt því að hafa nú kolefnisbundið losun í samstarfi við Kolvið og Votlendissjóð.
Niðurstöðum uppgjörsins er skipt í þrjá hluta: umhverfi, félagslegir þættir og stjórnarhættir. Uppgjörið er unnið skv. UFS leiðbeiningum Nasdaq fyrir 2020 en viðmiðunarárið er 2019
Svansvottuð hús
Þessi vörulisti yfir vistvænar byggingarvörur gefur innsýn inn það mikla vöruúrval af vistvænum vörum sem Húsasmiðjan býður upp á og eru leyfðar í Svansvottuð byggingaverkefni.
Fyrsta uppgerða Svansvottaða húsið
Nú er endurbótum á húsi við Þingholtsstræti 35 lokið. Þetta fallega hús hefur fengið yfirhalningu og er fyrsta uppgerða Svans-
vottaða húsið á Íslandi. Breyting ehf. stóð fyrir breytingunum í samstarfi við Húsasmiðjuna sem útvegaði bygginarefni í verkið sem allt er Svansvottað eða leyfilegt í Svansvottuð hús.
Nú er hægt að nálgast allar þær vörur sem voru notaðar í þetta verkefni ásamt fjölda annarra á heimasíðu Húsasmiðjunnar og
skoða vörulista fyrir Svansvottuð hús.
Við flokkum sorp, mælum orkunotkun og kolefnisspor fyrirtækisins í samstarfi við Klappir
Við leitum stöðugt leiða til að spara orku og minnka úrgang. Við erum í samstarfi við Klappir varðandi mælingar á orkunotkun og sorplosun á starfsstöðvum. Við notum EnviroMaster-lausn Klappa tila ð fylgjast með helstu umhverfsþáttum starfsemi okkar m.a. rafmagns-, eldsneytis-, heitavatnsnotkun og úrgangsmyndun (sorpi). Við höfum í mörg ár unnið markvisst að því að minnka sóun og flokka sorp í verslunum okkar um land allt og á skrifstofum.
Grænar vörur í Húsasmiðjunni
Húsasmiðjan býður upp á eitt mesta úrval landsins af umhverfisvænum byggingavörum. Í vefverslun eru allar umhverfisvænar og umhverfisvottaðar vörur sérmerktar með grænum borða sem við köllum "Græn vara".
Sjá nánar hér
Umhverfisvænar vörur
Við leggjum metnað okkar í að bjóða upp á mikið úrval af umhverfisvænum vörum.
Umhverfisvæn merki sem við erum með sjá hér.Hleðslustöðvar
Húsasmiðjan var fyrst byggingarvöruverslana til að bjóða upp á hleðslutöðvar fyrir rafmagnsbíla í Fagmannaverslun árið 2017.
Sjáðu úrvalið af hleðslustöðvum hér
Við kveðjum plastpokann
Árið 2020 hættum við að nota innkaupapoka úr plasti og skiptum þeim út fyrir umhverfisvæna poka úr maíssterkju. Pokana er hægt að fá í öllum verslunum Húsasmiðunnar og Blómavals. Árið 2021 tókum við svo einnig í notkun bréfpoka fyrir viðskiptavini sem kost í stað maíspokana.