Húsa­smiðjan fyrsta FSC og PEFC vottaða bygginga­vöru­keðjan á Ís­landi

FSC (Forest Stewardship Council) og PEFC (Programme for the Endorsement of Forest Certification) eru alþjóðleg vottunarkerfi sem tryggja sjálfbærni og rekjanleika timburs fyrir vistvæn byggingaverkefni. Húsasmiðjan er nú formlega vottaður söluaðili og er þar með fyrsta byggingavörukeðjan á Íslandi með rekjanleikavottun á timbri.

Vottað timbur er skilyrði í flestar vistvænar byggingaframkvæmdir. Húsasmiðjan er fyrsta byggingavörukeðjan á Íslandi sem hlýtur FSC og PEFC rekjanleikavottun fyrir sölu á timbri fyrir umhverfisvottuð verkefni.

FSC og PEFC vottanir eru ekki rekin í hagnaðarskyni og tryggja að timbrið komi úr sjálfbærum skógum sem haldið er við með plöntun fleiri trjáa en þeirra sem eru felld. FSC og PEFC vottanir vernda líf og vistkerfi skóga sem og samfélagsins í heild.
Þannig er tryggt m.a. að hugað sé að réttindum, þjálfun, launakjörum og öryggi starfsfólks sem starfar við nýtingu og ræktun skógana.

“Það er mjög mikilvægt fyrir Húsasmiðjuna að fá FSC og PEFC vottun, þar sem við getum núna tryggt rekjanleika timbursins allt frá framleiðanda til viðskiptavinarins. Árið 2003 var tekin sú ákvörðun að beina viðskiptum okkar frekar til framleiðenda með FSC og PEFC vottun á timbri. Við höfum því í mörg ár nánast eingöngu selt timbur frá vottuðum framleiðendum.
Við vildum stíga skrefið til fulls með vottun sem söluaðili og tryggja þannig viðskiptavinum
rekjanleika alla leið fyrir byggingaverkefni fyrst byggingavörukeðja á Íslandi.”


– segir Emilía Borþórsdóttir, verkefnastjóri umhverfis- og samfélagsmála hjá Húsasmiðjunni.

Sýnum ábyrgð í umhverfismálum

Veljum timbur úr sjálfbærum skógum

Í umhverfisstefnu Húsasmiðjunnar skuldbindum við okkur að vinna með markvissum aðgerðum að því að lágmarka umhverfisáhrif starfsemi okkar. 

Timbur er ein af grunnvörum okkar og því höfum við markvisst unnið að því undanfarin ár að færa öll okkar kaup á timbri til aðila sem selja FSC vottað timbur. 

 

Nú er svo komið að nánast allt timbur sem Húsasmiðjan er FSC vottað. Þar með talið er pallaefni vinsæla sem Húsasmiðjan er þekkt fyrir.  FSC vottun tryggir að timbrið kemur úr sjálfbærum skógum og þannig stuðlum við saman að því að vernda skóga og dýra þrátt fyrir að við séum að nota timbur sem byggingarefni. 

Við hvetjum því alla til að kynna sér vel FSC og velja umhverfisvottað timbur og sýna ábyrgð.

Sjá nánari upplýsingar um FSC hér

Nokkrar af helstu vörunum okkar